top of page

Vantar þig tæki í sveitina ?

Sala og þjónusta 
sími 555 6520
sala@hardskafi.is

Liðléttingar

Við sendum í einum grænum

Hagstæður flutningur heim í hlað

Ekkert hangs

Sjáðu strákana bera efnið í kurlarann. Þessi kurlari tekur mest 25cm sver tré og leyfir RPM 1000

Kurlari PTO 25,0cm

Traktorsdrifinn trjákurlari.  Aflþörf 90 - 120hp.

Þessi tekur 25cm lurka.  RPM 1000/540.

LXBXD  253 X 155 268cm.  Þyngd 910kg,  Öryggisrofar á öllum hliðum.  Drifskaft fylgir sem drífur hnífasettið.  Valsarnir stýra innmötun en þeir eru drifnir af glussakerfi traktors.  Vökvastýrð innmötun tryggir öryggi notandans, hann getur stoppað og bakkað samstundis.  Fjórir hnífar og einn móthnífur.

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Kurlari bensín 6,5 hestöfl

Afkastamikill bensínknúinn greinakurlari sem tekur mest 8cm sverar greinar.  Tilvalinn við sumarbústaði eða frístundabúskap þar sem efni sverar en 8cm er nýtt í annað.  100 kg, tveir hnífar á valsi brytja niður efnið hratt og örugglega.  Þeim er hægt að snúa við og svo má brýna. Þú stillir móthníf ef þú vilt fínna eða grófara kurl.  Afhendist ósamsett í kassa.  Þessi kurlari er einnig í boði með rafstarti.

Hvernig vel ég kurlara ?

Hvernig set ég hann saman ?

Hvernig skipti ég um reimar ?

Hvernig skipti ég um hnífa ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Teikningar

Greinasög 3 - 5 blaða

Greinasög vökvadrifin fyrir arma sem við seljum eða til að setja beint á vinnuvél.  Hægt er að setja beint á brettagaffla.  

Huga þarf vel að olíuþrýstingi / olíuflæði og festingum áður en keypt er.

Hentar sérlega vel til að saga greinar á löngum köflum sem klippur ráða ekki við.  Hæðin ræðst af því hvað vinnuvélin lyftir hátt.

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Stubbatætari

Öflugur stubbatætari. 8 stk hnífar/kólfar, 2 sett sem fræsa niður stubbinn. Nýtt hnífa kerfi sem hægt er að stilla og lengir endingu þeirra. 420cc 15hp bensínmótor.  135kg. Bremsur á hjólum.  Rafstart og kúlutengi gerir þennan afar meðfærilegan.  Einnig til minni með spottastarti eingöngu og án kúlutengis.

Sjá töflu í myndasafni.  Þessi heitir W3000.

Menn hafa lært af reynslunni að svona tæki þarf að vera með kúlutengi, annað er tómt strit.

Á forsíðu er verð á öllum vörum

-

Kurlari PTO 17,8cm

Kurlari fyrir traktor.  Þú stýrir aftur á bak og áfram og stopp án þess að þurfa að hlaupa í traktorinn.  Greinar og trjábolir allt að 17,8cm breytast í kurl á augabragði.  Swinghjól er 710mm með 4 hnífum.  Aflþörf 50 - 70hp. 

Afkastamikill og góður kurlari. 

Tvær útgáfur í boði; annarsvegar með slöngum til að tengja í traktor eða lokað glussakerfi sem einnig er drifið af PTO.  Glussakerfið stýrir innmötun og öryggiskerfinu.

 

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Kurlari bensín 15hp

15 hestafla bensínmótor með rafstarti knýr þennan kurlara.  Hann tekur greinar og trjáboli allt að 9cm breidd.  Þetta tæki er á hjólum og því hægt að færa auðveldlega eða draga með fjórhjóli eða traktor innan lóðarmarka.  Hann rífur í sig efnið með hnífunum.

 

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Kurlari bensín 15 hestöfl EL

Stór og öflugur bensínknúinn greinakurlari sem tekur 12cm sverar greinar.  Hér er um að ræða gott tæki þar sem traktor verður ekki auðveldlega komið að.  Hægt er að draga þetta tæki á milli notkunarstaða í skóginum með fjórhjóli.  15 hestöfl og rafstart.  Vökvadrifinn búnaður dregur inn efnið að hnífavalsinum sem gerir þennan kurlara afar notendavænan.  Verktakar, skógræktarfélög og áhaldaleigur eru meðal viðskiptavina.   Afhendist fullsamsettur og tilbúinn til notkunar.

 

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Myndskeið
Handbók
Teikningar

Kurlari bensín 32,5 hp EL

Þessi kurlari er væntanlegur í sölu á næstu vikum.  Bensínvél B&S Kohler CH940 32,5hp.

7 gallona tankur.

Kúlutengi, dekkjastærð 165/70R13 79N

570kg

Hámarks sverleiki 6" eða 152mm

Afköst 5 - 10m3/klst

Rated RPM 1700

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Handbók
Teikningar

Kljúfur 230V

Viðarkljúfur fyrir sumarhúsið.

6 tonna átak, mest 50cm lengd á kubbum, mest 30cm sverir.  230V, 3000w.

Þyngd 97kg.  Afhendist ósamsett.

Hér er myndskeið af samsetningu.

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Kurlari PTO 10cm

Kurlari fyrir traktor.  Hann er með sitt eigið glussakerfi fyrir stýringu (lokað), dælan drifin af pto.  Þú stýrir aftur á bak og áfram og stopp án þess að þurfa að hlaupa í traktorinn.  Greinar og trjábolir allt að 10cm breytast í kurl á augabragði.  Kurlið er gagnleg afurð og ágæt söluvara þannig að kurlarinn getur skapað tekjur.  Margir sjá önnur not fyrir efni sem er sverara en 10cm.  Það er gagnlegt að skoða 10cm á málbandi.

Þessi kurlari er einnig til vökvadrifinn að öllu leiti sem hentar vinnuvélum þar sem ekkert er aflúrtakið.

 

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Handbók
Teikningar

Mulningsvélar f. skógarbotn

TMC CANCELA  Með þessum vélum getur þú unnið jarðvinnu og hreinsað skógarbotninn, tætt niður stubba og kurlað trjáboli.

Meðfylgjandi eru myndir og myndskeið.

Margar útfærslur eru í boði.

Sölumaður veitir nánari upplýsingar.

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Handbók
Teikningar

Skógavagnar 

Skógavagnar í ýmsum útfærlsum, litlir eða stórir fyrir fjórhjól, með eða án upphækkana svo eitthvað sé nefnt.  Nánari upplýsingar koma hér þegar þeir koma síðar í mars.

Á forsíðu er verð á öllum vörum

-
Handbók
Teikningar

Stubbatætari fyrir traktor

Öflugur stubbatætari.  Hann passar á Cat.1 og Cat.2 traktorsbeisli.  16 stk tennur tæta niður stubbinn.  RPM 540.  Það þarf einn tvívirkan glussa til að stýra vinnslunni.  Skurðarhjólið fer hæst í 40cm og dýpst 30cm undir yfirborð.

Snúningshraði á skurðarhjóli er RPM950.

Þyngd 280kg.  Drifskaft með öryggisbolta fylgir með.  Lágmarksaflþörf er 30hp.  

Einnig eru í boði vökvadrifnir stubbatætarar fyrir liðléttinga og smágröfur.

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Teikningar

Kurlari 10cm pto

Lítill og nettur kurlari fyrir litla traktora.  Tekur 10cm sverar greinar,  stillanlegt frákast, aflþörf lágmark 20hp, cat.1, fjórir hnífar og einn móthnífur, drifskaft með brotbolta fylgir með. 180kg.

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Teikningar

Kurlari vökvadrifinn

Lítill og nettur kurlari fyrir litlar vinnuvélar.  Tekur 8cm sverar greinar,  stillanlegt frákast, fjórir hnífar og einn móthnífur, 180kg.

Nú getur þú kurlað og notað t.d. liðléttinginn. Hér er ekki notað drifskaft heldur glussaslöngur úr traktor.

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

Teikningar

Kurlari PTO 14,8cm

Kurlari fyrir traktor.  Þú stýrir aftur á bak og áfram og stopp án þess að þurfa að hlaupa í traktorinn.  Greinar og trjábolir allt að 14,8cm breytast í kurl á augabragði.  .  Aflþörf 25 - 55hp.  Drifskaft fylgir sem knýr glussadæluna.  Það eru tvær útgáfur í boði, annarsvegar lokað vökvakerfi sem hentar ef olíuverkið í traktor er veikt og vökvakerfi beint í traktor.

 

Hvernig vel ég kurlara ?

Á forsíðu er verð á öllum vörum

-

HRM 500 armur 90hp+

Armur fyrir traktora 90hp+. Á arminn er sett sláttuvél 130cm, klippur 3 stærðir, sög eða orf.  Armurinn og verkfærin eru drifin með pto þ.e. drifskaftinu einu saman og er 1050kg á þyngd. Armurinn er seldur sér og verkfærin sér. Stjórnbúnaður í traktor fylgir.  Einnig er í boði armur fyrir minni traktora.  Hér má sjá myndir af HRM500 arminum ásamt þeim verkfærum sem í boði eru.  Traktor þarf að vera 3,5 tonn að þyngd, armurinn getur teigt sig í 6 metra.

Nánari upplýsingar veitir sölumaður.

Á forsíðu er verð á öllum vörum