
Vantar þig tæki í sveitina ?
Sala og þjónusta
sími 896 5486

Dreifari
125lb, 60lítra dallur. 14" lofthjólbarðar. Magni er stýrt í handfangi. Kastdiskur sækir afl í hjólaöxul. Vængir til að skerma af dreifingu og miða út svæði sem á að salta. Fyrir áburð, grasfræ, salt og sand. Allt að 3,6 metra dreifing. Tryggðu þér eintak.

Staurabor
Staurabor fyrir þrítengi, drifskaft með öryggisboltum fylgir með. Glussakerfi þrýstir bornum niður og dregur hann upp. Borar eru seldir sér en þeir eru til í stærðunum 150mm, 225mm og 300mm. Allir eru þeir 125cm langir.

Gröfuarmur
Gröfuarmur fyrir traktora, annarsvegar lítill 20 - 35hp og svo 30 - 60hp cat.1 og cat.2. Láttu okkur senda þér ítarlegar upplýsingar.

Staurabor
Stauraborvél með bensínmótor, borar seldir sér. Tengi fyrir dráttarkúlu.

Staurabor
Stauraborar fyrir vinnuvélar og smágröfur, ýmsar útfærslur í boði.

Sveitakassi
Sveitakassinn hefur komið vel út, Góður í snuddið og reddingar. Skófla og geymsla með bakhlið. Þú bakkar í hauginn og sækir efni eða lokar kassa og geymir þar verkfæri. Stærðir í boði 120cm og 150cm. Hægt að sturta.
150cm kassinn er 130kg og hann er 74cm á dýpt.

Rafbörur
Rafbörurnar hafa fengið vígslu hér. Þær bera 500kg, rafhlaða á að endast í 3 klst og eru í 5 - 7klst að hlaðast frá núlli upp í 100%. Þær keyra, bakka og sturta en þú stýrir. Mjög gott grip og vinnur vel en samt ekki heppilegt í drullumall og miklar torfærur því það er ekki hátt undir lægsta punkt. Þetta er ekki barna leikfang frekar en önnur tæki hér.

Vélbörur
MuckTruck vélbörur eru með drifi á öllum hjólum. Burðargeta 250kg, 3 gírar áfram og einn aftur. Honda fjórgengismótor.
Það er gott að komast hjá því að þurfa að bera þungt efni upp þrönga stíga.
Svo er það líka eftirsótt að fá að vera trukkastjóri.

Skófla
Þessi skófla er á sterkum ramma fyrir þrítengi. Með henni er hægt að moka og flytja efni. Skóflan er til í stærðunum 120cm 140cm 160cm og 200cm breidd. Aukabúnaður er glussa opnun.

Sparikassi
Með honum er hægt að moka. Honum fylgir bakhlið sem gerir hann að fínum flutningskassa fyrir snuddið. Þessi skúffa er 140cm breið og er 235kg. Ýmsar stærðir í boði.
Þó að hann heiti sparikassi, þá mælum við ekki með að peningar séu geymdir í honum.
Aukabúnaður er glussaopnun.
Margar stærðir í boði eru frá 120cm - 200cm.

Fellikassi
Á þessum kassa er hægt að fella niður þrjár hliðar þannig að eftir stendur pallur sem býður upp á meiri tilfæringar. Sterkbyggður rammi, þú getur valið um ramma og einnig gaffal festingar. Fellikassinn er til í stærðunum 140cm 180cm og 200cm.
Kassinn sem er 180cm á breidd er 103 á dýptina og skjólborðin eru 40cm á hæð. Þessi kassi er 190kg og er gefinn upp fyrir 700kg farm. Litlir traktorar gætu þurft minni kassa.

Moðhvísl 150 180
Hér er hvísl til að moða úr. Tvær stærðir og þú velur um festingar eða sérð um það sjálfur.

Brettagaffall
Brettagaffall með eða án eurofestinga. Hámarkshleðsla 2000kg, gafflalengd 120cm, þyngd 135kg.
Aukabúnaður er vökvastýrður armur, goggur til að styðja við farminn.

Brettagaffall
Brettagaffall með eða án eurofestinga. Hámarkshleðsla 2000kg, gafflalengd 120cm, þyngd 135kg.
Aukabúnaður er vökvastýrður armur, goggur til að styðja við farminn.

Rúlluspjót
Öflugur rammi er með eurofestingum, spjótin eru tvö 100cm

Baggagreip
Þyngd: 273 kg, opnunarsvið:1016mm - 1930mm, hámarks burður: 800kg án festinga og ramma, hæð á örmum 60 cm

Rúllugreip
Rúllugreip með eurofestingum, hámarksopnun 170cm, 170kg,

Raftakjaftur
Texti í vinnslu

Steinagreip
Steinagreip er notuð til að grjóthreinsa flag eða annað. Yfirgreip tryggir svo að ekki detti af. 150cm og 180cm

Ruslagreip
Ruslagreip eða hvað þú vilt kalla þessa. Fín greip þar sem þröngt er á þingi og erfitt að komast að. 90cm

Pelíkanaskófla
Skófla með góðu yfirgripi.
120 140 og 160cm.
Efnismikill og góður hlutur.

Skóflur opnanlegar
Skófla glussaopnun meða eða án festinga.
fimm stærðir
900 1100 1300 1400 og 1500mm
Þú getur valið festingar ásettar s.s. Giant, Uniloader, Schaffer, Weidermann, Multione Avant og Euro festingar.

Tannskófla með yfirgripi
Texti í vinnslu
100cm og 130cm

Skóflur á framfestingar
Skófla með eurofestingu.
200 220 og 240cm

Skófla fyrir gröfuarm
Skófla fyrir gröfuarm.
700 og 900cm.

Skófla fyrir gröfuarm
Ef skóflan sem fylgir gröfuarmi er ekki nógu breið þá er hér 50cm skófla.

Álkassi
Álkassinn er nauðsynlegur ferðafélagi. Málsetning 73x30x24.
Það er nauðsynlegt að hafa góðan verkfærakassa um borð í traktornum, fjórhjólinu eða sleðanum.

LED ljós segull
LED Ljósasett með segulfestingum til að festa á kerruna eða vinnuvélina þegar mikið liggur við.
Fjórar fúnksjónir: Afturljós, bremsuljós, stefnuljós og númeraljós.
Kapallinn er 2,5mtr á milli ljósa og 7mtr kapall með 7 póla tengli.

Fastlyklasett 21 stk
Það er mikilvægt að herða upp á boltum reglulega til að fyrirbyggja vandræði. Þá er gott að hafa við höndina sterkbyggt fyrirferðalítið fastlyklasett sem hægt er að rúlla upp þar sem allt er í röð og reglu. Óslitin röð frá 6 - 22 og 24, 27, 30 og 32

Rammi á þrítengi
Ramminn gerir þér kleyft að draga vagn sem gerður er fyrir beisli með dráttarkúlu.

Brettagaffall
46 tommu gaffall, 104cm lengd, lyftigeta 700kg. þyngd 49kg

Brettagaffall
48 tommu gaffall. Kat 2, lyftigeta 1000kg, þyngd 87kg.
135 x 96 x 94 cm

Pallur
Flutningspallur á þrítengi.