top of page

Vantar þig tæki í sveitina ?
Sala og þjónusta
sími 555 6520
sala@hardskafi.is
Fréttavaktin
Fréttin verður uppfærð ...
TMC Cancela
Mjög öflugar og vel smíðaðar vélar til að kurla grjót eða skóga. Fyrir gröfur, dráttarvélar og róbóta.


Búsköfur og sópar
Nýtt í sölu frá Westermann. Búskafan hefur fengið frábærar viðtökur. Þú velur flórsköfu, fóðursköfu eða minni skrapara.
Einnig vélkústar sem þú gengur með. Annars vegar er um hleðsluvél að ræða sem hentar innandyra s.s. í fóðurganga og vöruhús. Svo er um að ræða vélkúst með Honda mótor en hænn ræður betur við utanhúss vinnu s.s. að hreinsa gangstéttir.




Varaaflstöðvar
Vantar þig varaafl. við bjóðum upp á öflugar varaaflstöðvar með Cummins díselvél sem henta fyrir búrekstur, hótel og sveitarfélög.
Smágröfur
Við höfum lækkað verð á 1,2 tonna og 1,4 tonna beltagröfunum okkar. Þú færð núna betra verð í vél og þá fylgihluti sem þér hentar.
Við sendum auðvitað í einum grænum.




Við höfum hafið innflutning á Avenger dráttarvélum í samstarfi DK-TEC í Danmörku sem er okkar helsti samstarfsaðili. Það er mikill styrkur í því að vera með öflugt bakland sem tryggir skjóta afhendingu á vörum og örugga afgreiðslu á varahlutum. Í Danmörku eru vélarnar standsettar og prófaðar áður en þær eru afgreiddar til íslands. Í fyrstu eru dráttarvélarnar í stærðinni 26hp með Mitsubishi diselvél en innan tíðar getum við boðið upp á stærri vélar.
Með Avenger dráttarvél opnast margir möguleikar til að takast á við verkefnin í sveitinni. Á www.hardskafi.is má sjá ógrynnin öll af tækjum til að setja á þrítengið eða framan á dráttarvélina.
Vélbörur eða rafbörur
Rafbörur hafa sótt mikið á, en þær henta vel t.d. við gegningar og ýmsa erfiðisvinnu þar sem flytja þarf efni um lengri eða skemmri veg hávaðalaust og án mengunar um slóða eða stíga. Upp úr næstu áramótum verður úrvalið meira en áður. Rafbörur á hjólum með ausu eða með flatpalli fyrir pakkaflutninga. Vélbörur bensínknúnar á hjólum eða beltum með aða án mokstursbúnaðar.
Venjulegar hjólbörur með hjálparmótor gera brekkurnar árennilegri og létta mörgum starfið mikið án þess að farið sé út í miklar fjárfestingar.



Smágröfur
Við höfum selt smágröfur um nokkurt skeið. Reynslan er aldeilis frábær.
Við afgreiðum þær fullstandsettar með þeim aukabúnaði sem viðskiptavinur óskar. Þó svo að við höfum fyrst of fremst horft til frístundanotkunar þá hafa allmargir verktakar keypt vélar í atvinnuskyni. Þær hafa staðið vel fyrir sínu og menn lýst yfir ánægju með getu og afköst. Í dag eru gröfurnar 1,2t loftkældar og 1,4t vatnskældar. Þá er hægt að velja um vélbúnað, beltafærslur, hraðastýringu og aukabúnað sem hentar í vinnuna.
Grafa er ekki bara moksturstæki. Allur sá aukabúnaður sem er í boði gerir gröfuna að fjölnotatæki. Dæmi um aukabúnað sem kominn er í sölu er, brotfleygur, grjótskófla, þumall og gripkló sem gerir þér kleyft að grípa og færa til allskyns efni og rusl. Með dráttarkúlunni getur þú skottast með létta kerru aftan í.




bottom of page

